Í drottins anda

Er ekki lífid bjútífúl

20.11.2006 20:51:25 / zyrniros

Grasekkja á ný ....

Karlinn minn er floginn út í heim á nýjan leik.  Hann gistir í London í nótt og fer þaðan í aðra heimsálfu.  Svaka stökk og ljúfust ein eftir heima með börnin tvö.  Það líður að háttatíma og góðri nótt.

Góði Guð,
gerði mig góðann,
því ef ekki,
fer ég lítill til guðsheima.

Þessa bæn fer sonur minn með á kvöldin og það er komin tími á burstun og knús fyrir draumaheima.  Við söknum pabba sem fór yfir hafið.

Bara að prófa að laum mér hingað inn.  bloggheimur er frekar rólegur þ.e. þeir sem eru í mínum hring.  Kanski ég fari í bænahring bara!

Í kvöld biðjum við fyrir jákvæðni og frelsi.  Sameinumst öll í jákvæðu hugarfari.



» 0 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 21:45:51 / zyrniros

Af hverju koma 22 í heimsókn á sídu sem er lömud ....

Gód spurning???

Ekki er það vegna ritsnilldar né opinnar sálargáttar. Það sem verður að viðurkennast með þessa öðlingsíðu að hvergi hefur snótin öðlast jafn mikinn lestur af ókunnugum sem kunnugum sem margir hverjir hafa hljóðan að vin.
En, fyrst við erum hér saman komin, þú og ég þá skulum við bara gera gott úr þessu í dag! Dagurinn hefur verið langur, fremur langur, 11 klukkustundir við lyklaborðið og einn herbahristingur tekinn. hugsanlega 3 lavazza kaffibollar ofursterkir og ekkert hvolft eins og afi hefði sagt.
Eftir umhugsun og samantekin ráð mafíunnar sem óð Skötubótina sér til ánægju og synti sjóinn sér til hugrekkis er stefnan tekin á blog.is moggabloggið sem er bara hið þokkalegasta. Áfram sama drottningin, sama Snótin, sama litla ég sem sefur til 7 á morgnanna, drekk herbahristing og ríf kjaft á daginn.
Er þessi kona sem ég verð vonandi einhverntímann, að lifa lífinu til fulls. Útmökuð í Olíulitum með nefbroddinn þaninn af lyktinni.
Í kvöld ætlaði ég að mála fjöll en í nótt ætla ég að klífa ástarfjallið.
Í nótt býð ég hættunni heim og kveð ykkur í hinsta sinn á Centralnum og býð ykkur hins vegar í heimsókn á www.blog.is/zordis eða á www.zyrnirosin.blogspot.com. Belíf mí ég á fleiri blogg en nóg er nóg!
Kata krummi, Heiða sæta, Bidda bjúti og Lilly ísaða, Zóti saeti og Lísa skvísa! Allir hinir sem geta lesið þetta bull takk fyrir að hafa komið við og gefið mér tima.
0.2 kcal af Diet Coke falla ljúft inn fyrir varir ástarklifrarans .....
Í hinsta sinn ég kveð þig,
í hinsta sinn ég finn.
Í hinsta sinn ég man þig
í hinsta sinn ég fer.
"Hún sagði ekki einu sinni bless" Ingibjörg og Haraldur enn á lífi eftir öll þessi ár!

» 3 hafa sagt sína skoðun

18.03.2006 09:58:54 / zyrniros

Kveðjustund!

Ævintýraheimar birtast augum, það er bara þannig dagur.  Salsa tónlist, pensilstrokur og enginn smá strigi.  40 x 1.20 Nú skal hamast eins og Hamstergirl sæmir.

Annars var ég að spá í þessu með Centralinn, ferlega leiðinlegt þetta öryggiskerfi.  Get hvergi kommentað þar sem ég dett altaf út og týni þ.a.l. bjánaskapnum og hver nennir að kommenta eins og rispuð plata ....... Til dæmis reyndi ég að kommenta hjá Margréti en gat það ekki.  Margrét mín styrkur til ykkar, gat hins vegar komið því á framfæri hjá S.rósinni en þær stöllur eru systur!

Margt skemmtilegt framundan þar sem dagur er ungur.  Kanski mín ætti að koma drengnum í föt .... hann er að náttfatast að stelast í spil systur sinnar sem er vonandi að taka til í herberginu sínu, þrífa í fataskápum og svo þarf hún að æfa pianóið.

Enn aftur að þessum Central, búin að fá nóg að geta ekki kommentað með mína brauðputta .... þarf að spá í þetta!  Þetta er ekkert gaman lengur!  Engin hnittni eins og krummarnir jafnan keppast við.  Blix til ykkar krummar!

Sumir hlutir eru þess verðugir að berjast fyrir og hef ég beitt þeim ráðum þegar ég hef viljað viðhalda einhverju í mínu lífi.  Stundum hef ég unnið og stundum tapað.

Lífið eru dásemdarstundir sem við gætum og mætum.  Hvað væri það án alls þessa er birtist fyrir augum okkar.  Ævintýrið ert þú og ég, það snýst um okkur!

Í mínu kærleikshorni hef ég stað fyrir allt og alla.  Í hornið er gott að hverfa.  Best ég kíki í hornið mitt .......

Bless!

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 15:16:55 / zyrniros

Algjörlega óvarin ....

... Það er ýmislegt er drífur á daga Frúarinnar.

Á Sunnudaginn gerðist Frúin kelin og tók upp hamstur, þess má geta að Hamstur einn bjó hjá mærinni þegar barn var.  Einhvern veginn kemur það á óvart að mín tók upp Hamsturinn og ákvað að gefa honum rjóma.

Hamsturinn trylltist af kæti og sleikti út um ..... Sleikti svo tryllt að lítil hrjúf tunga snerti fingurgóminn en rjóminn var búinn og Hamsturinn beit svona líka inn í hold að mín kipptist við og hló geðshrærðum hlátri.  Fólki var skemmt sem er mest um vert en puttinn var alblóðugur og mikið kreist til að ná út hamstraveirunni sem kanski er smitandi okkur mönnunum.

Ekki Catwoman heldur Hamstergirl .......

Ekki koma ófarirnar ósléttar og einar sér og haldið ekki að blómabjargvætturinn "moi" hafi fengið kaktus í lófann!  Og í sömu hendi og nartaði fingurinn.

Já, lífið er dásamlegt þrátt fyrir bit og kaktusa þyrna.

Ég brosi enn :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.03.2006 09:14:12 / zyrniros

Betrekk eða Veggfóður ....

Hálfgerð ef ekki algjör leti í Frúnni en ekkert sem ekki má bæta.

Spurning með hvort þetta sé leti því þótt blogghrifin séu mismikil þá heldur hið almenna ástríka líf áfram.  Penslum dýft og hendi sveiflað ..... 3 nýjar sossum ekki slæmt!  Fer að vanta striga en luma á nokkrum stórum ..... stórir strigar fyrir stórar stelpur!

Börnin og ektamaðurinn brugðu sér í kvikmyndahúsin og sáu bleika pardusin, æði, æði, æði.  Mömmu mús fékk sér göngutúr og náði í póst á götu er kennd er við þrautagöngu Jesú heitins.  Ég fékk að halda á litlum fallegum dreng, Orri Thor var hinn yndislegasti og vildi brjóstið sitt.  Ekki frá því að smá hringing að handan hafi leikið um vitin :)

Börnin eru það besta í lífinu, það er ekkert sem jafnast á við þessi elskulegu börn.  Það er eins gott að manni takist vel til og að þetta verði blíðir og góðir einstaklingar. 

Framundan er fjölskyldupartý, nóg að gera og sem dæmi þá þarf Frúin við þetta hátíðlega heimboð að taka málningargræjurnar og pakka þeim niður í Kjallara.  Svei mér þá þetta er orðið þvílíkt magn þarna niðri að ég þarf ekki að betrekkja!

thi hi hi ..... góðann sunnudag!

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 18:46:51 / zyrniros

Hvaða litur er til sýnis .....

Kanski gulur eða blár eða þessi karmíski regnbogalitur, humm, já, kanski.

Allavega litur þess að skrá niður spennandi líf Frúarinnar. Þess má geta að leyniorð brúðkaupssíðunnar er nú komið í lag og 2 heilar myndir komnar inn. Það versta við Picasa er að minni hefur ekki tekist sem skildi að setja inn myndir þar ..... Kemur sossum ekki á óvart þar sem tölvuvæðing er ekki ofarlega.

Að auki talandi um myndir þá er mín búin að vera dugleg og setja inn nokkrar nýjar og komin með eina fullgerða í bið inn og aðrar bíða smekkhlæjandi að verða kláraðar.  Já og allir að kíkja á www.zordis.com .... og talandi um myndlist þá hefur www.bjorkin.com einnig skreytt sína síðu með nýjum myndum, allir þangað líka.  Hvatning til þeirra sem hafa áhuga að mála er að kaupa sér striga og liti, frétti að striginn væri ódýrari á Íslandinu .... Og, allir saman nú!

Nóg að gera og má geta þess að hitastigið fór upp í einar 26°í dag og mun ég birta strandmyndir frá hádegisbili til að deila með ykkur á www.zyrniros.blogspot.com.

Vissulega er Frúin orðin geðbiluð í bloggi þar sem allnokkrar síður eru í gangi við mismikið gengi í birtingum.

Eftir daginn þá er ég búin að fara á ströndina, keyra strandlengjuna endilanga, fara með gögn til að fá loksins bensana til umráða, borða hádegismat á æðislegum veitingastað með öðrum karlmanni en ektamanninum, fara í ökuferð með blæjuna niðri og madonnu í botni og fara sveitarúnt að hitta byggingaraðila. Nokkuð bissý dagur og alls ekki liðinn.

Sonur minn er í baði, dóttir mín að koma úr tónlistartíma, ektamaðurinn var að koma inn og við búin að vera gift í 5mánuði og einn dag!

Dagur til að fagna!


Aldrei að vita hvenær lífið endar, aldrei að vita hvenær við kyssumst hinsta kossinn!

Lífifð er of dýrmætt til að gera annað en að elska hvort annað ....

» 3 hafa sagt sína skoðun

04.03.2006 23:34:51 / zyrniros

Shop till jú

drop .....

Kanski ekki alveg en við mæðgurnar fórum í verslunarleiðangur seinnipartinn, tja svei mér þá bara núna í kvöld. Klukkan var að nálgast 1900 er við lögðum í hann en feðgarnir höfðu farið í afmæli hjá Kevin sem er bekkjarfélagi sonarins.

Við mæðgur skruppum í nokkrar verslanir og fórum fyrst í fataverslanir. Mamman fékk sætan kjól og hneppta rebekku, "rebeca" og yndisfríð dóttir mín keyptir sér flotta tískustrigaskó og peysu.

Þegar hér var komið var klukkan orðin allmargt og heilmikil verslun ógerð fyrir heimilið. Við kipptum því í liðin enda höfum við farið á námskeið há verslunarmenntaðri konu sem kann öll trixin. Við keyptum í matinn, fylltum kælinn af ávöxtum og heilar 48 diet coke voru keyptar þar sem þær voru á niðursettu verði.....................

Ektamaðurinn fékk andköf er hann sá 2 kg af jarðarberjum, melónu flykki, sítrónupoka og banana stæðuna. hér er margt ónefnt en það tók okkur allavega 6 ef ekki 7 ferðir gjörsamlega hlekkuð af vörum, er fermdar voru inn í húskofann. Frúin kann að versla með aðstoð dótturinnar sem segir ekki stopp við neinu sem er óþarfi.

Koss fyrir bóndann sem er hamingjusamur með þessu ofurkerlingu sem hann hreppti, hvað annað. Lífið er jafn yndislegt og við ætlum því.

Knús til ykkar, tryggu lesendur!

» 4 hafa sagt sína skoðun

03.03.2006 16:22:37 / zyrniros

Lítill látinn fugl ...

.... litli fuglinn fannst lífvana og algjörlega máttlaus fyrir utan skrifstofna okkar í gær. Sem góður granni með umhyggju fyrir grænni hugsun hringdi ég á 091 sem er neyðarnúmer hér á Iberíuskaga.

Konan var viðmótsþýð í alla staði og bað mig að hringja í 092 sem er neyðarvakt lögreglu. Þriðja símtalið var gert og þar fékk ég samband við lögregluforinga vaktarinnar og sá ég í gegnum tólið að honum var bros á vör. "Þú ert í öðru umdæmi og verður að hringja í þitt umdæmi" .....

Frúin. Já, allt í fína, getur þú látið mig hafa símanúmer til að hringja í þar sem mér var sagt ......

Gripið fram í, já, en þér tilheyrið öðru lögumdæmi! ...... trala la la, söngur hljómar í tólinu og meiri söngur, hann var ekki að finna þetta númer til að tilkynna látinn fugl.

Kommon hvernig má það vera að þegar hringt er í neyðarlínu að þeir viti ekki hvert skal hringja. Á endanum fékk ég númer sem ég hringdi í og var beint á annan stað sem ég þurfti svo að hringja til í tvígang þar sem símakerfið í bæjarráði strandarinnar var ekki að virka.

Samvinnuþýður lögregluþjónn kom loks í símann og var hinn almennilegasti, enda notaði frúin PÆJURÖDDINA og hún virkaði.

Til að gera risasögu langa eða styttri þá komu 2 laganna verðir og hittu mig og ég sýndi þeim aðstæður og þeir voru nú ekki eins áhyggjufullir og ég. Mín ætlaði barasta ekki að fara að taka upp lítið fuglslík ef þessi litli fugl hefði verið í snertingu við kött í þýskalandi eða við önd í svíþjoð eða þaðan af meiri farandsfugl.

laganna verðir tjáðu mér að samband yrði haft við heilbrigðiseftirlit til að koma og hirða líkið og ef ástæða þætti til að rannsaka litla tillann. Aukreitis tjáðu þeir mér aðalhættuna falast í dauðum gæsum, öndum og svönum.

Frúin spurði hvort þeir væru með miðilsvisku og hvort þeir einföldu mennirnir ætluðu að ábyrgjast að ekki leyndist sýking í þessum litla fuli.

Better safe then sorry ........ Betra að vera öryggishólf en leiður


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 08:01:32 / zyrniros

Svarteygðar baunir fylla vit

Enn einn fíni morguninn sem rennur upp ljós. Í dag verð ég ekki fyrir aðkasti, í dag mun ég sigra sem flesta aðra daga lífs míns.

Í dag ætla ég að kaupa miða til styrktar fatlaðra.
Í dag á vinkona mín afmælil.
Í dag er ég svartklædd.
Í dag drekk ég kaffi, svart og sykurlaust.
Í dag held ég áfram í mjónuferlinu.
Í dag líður sem aðrir dagar.

Draumurinn kom og fór inn og út um vitið og skildi ekkert eftir. Í gær fór ég að sofa rétt fyrir 0300 en kvöldið áður um 2100. Öfgarnar eru enn við líði í lífi konunnar sem er að minnka.

Tónlistin í morgunsárið eru The Black Eyed Peas ..... Skrambi góðir, spurning hvort grönnunum finnist það :)

Best að fara á markaðinn ...... útimarkaður í krúttlega bænum mínum og kaupa blóm í tilefni dagsins.

Ljósið faðmar okkur öll, í dag er dagurinn til að standa upp og sigra, í dag mun ég takast á við allt sem ég hef skilið eftir svo lengi.

Faðmlag!

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.02.2006 23:58:05 / zyrniros

Klikk og Klukk

Næ ekki að peista þessum langa langa langa langa langa x leik og nenni ekki að flakka á milli svo ég ætla að búa til nýjann .....

Nefna uppáhalds;

1. litinn Gulur
2. Staðinn Heimilið
3. Bloggið Mitt eigið
4. Matinn Kavíar og rjómi
5. Drykkurinn Kampavín og kranavatn
6. Barnið 50% í báðum mínum
7. Dömubindið Vesprey
8. Klósettp. Hvolpapappírinn svo er mogginn líka kúl
9. Herbergið Hjónaherbergið, getur verið fjör þar
0. Leikfangið Vibbinn
1. Flíkin Dúnsokkarnir sem ég fékk í jólagjöf frá bigga
2. Dýrið Hrafninn
3. Lyktin Cartier og Johnson púðurlykt
4. Plantan Baldursbrá
5. Ýmindin Spegilmyndin sem ég sé á morgnanna
6. Leikurinn Þessi .....

Ok veit að þetta er vægast sagt púkó leikur en sossum ekki verri en hver annar.

Upplagðar spurningar gætu verið;

hefur þú fengið;

Tannpínu
Njálg
Heilahimnuvírus
Kynsjúkdóm
Fótasvepp
Rauða hunda
Valentínusargjöf
Teiknibólu í rassinn
10 á stærðfræðiprófi
Falleinkun í Samræmdu prófum
Bólu á rassinn
Munnangur

Well, er til eitthvað sem er meira boring en að finna upp á æsilegum ónauðsynlegum hlutum um sjálfan sig í þeirri von um að lesa um það sama annarsstaðar.

Þá spyr ég, sem fyrrverandi íþróttastjarna og núverandi þykjustu mjóna hvort tilgangurinn sé ekki  BARA að vera með, ekki neitt annað en að bindast eilífu bloggbandi við þá sem líta við. Sá sem ritar og opinberar sig fær oft ekkert endurgoldið af þeim 10, 20 eða 30 sem líta við á degi hverjum. Akkúrat  þá hugum við að tilgangi þess að skrá allt mögulegt, nauðsynlegt og verulega ónauðsynlegt á blað ..... Nákvæmlega við spilum með til að eiga möguleika.

Já, ég tilheyri fjöldanum sem tjáir sig um allt og ekkert. Hvort sem það er satt eða logið, raunveruleiki eða flótti er svo  allt önnur Ella???

Listinn minn er skilaboð til allra sem taka hann til síns .... Uppáhalds liturinn minn er náttúrulega svartur en var gulur áðan. Kanski er það vegna þess að ég er barn regnbogans, ég er með ævintýraþrá í hjarta og ber karakter þess er leitar uppi. Ég er fílugjarnt hamingjubarn sem reynir að fara í fýlu eins oft og möguleiki er á. Ég er ..... Ég er ein af þeim fjöldamörgu sem taka þátt í sjálfselsku og sjálfsdýrkun. Hér er ég um mig frá mér til mín...... Ég, Egócentrik, humm hvað gerði ég í dag, var ég ekki örugglega með sjálfri mér. Skiptir ekki máli þar sem í lok hvers dags hátta ég með mér og vakna svo alsæl með mér daginn eftir.

Hver er svo uppáhalds manneskjan í lífi mínu .....

ÉG



» 9 hafa sagt sína skoðun

26.02.2006 12:10:20 / zyrniros

Næturhrafn er sá er vakir næturlangt

Næturhrafn er Hrafn sem til heyrir náttmyrkrinu. Hrafn er hvort um sig maður og dýr. Ég er hins vegar rándýr sem vaki næturlangt og mála Hrafna. Hrafnar eru eitt af því fallegasta sem til er. Falleg mynd úr glugganum hjá Lísu  get því miður ekki linkað hana inn það er sem oft áður vandamál á þessu centrali :evil:   Akkúrat það myndefni sem mig hefur alltaf langað í. Alltaf haft í huga að fá mynd af þessum stað í hrauninu af vinum mínum Hröfnunum á fannhvítu hrauninu í leit að æti.

Oft voru haldnir fundir á þessum stað og var undun að sitja og horfa á þá Hrafnana sem komu ár eftir ár! Falleg mynd hjá þér Lísa, væri til í að sjá hana í meiri nálægð!

Annars er mín óvenju hress eftir lítinn svefn. Vaknaði svo sem ekkert óvenjusnemma en um 11 leytið skreið ég framúr. Litla hjásvæfan þ.e. sonurinn sem kallar á hverju kvöldi eftir mömmu sinni vaknaði hálftíma siðar en dóttirin árrisul og tilbúin að fara út á línuskauta.

Lífið eins og aldrei fyrr, morgun umvefur sig þreyttum líkamanum enda dagur tekinn að eldast. Við munum hafa það huggulegt í dag, þetta er svona dagur sem mig langar bara að "hanga", samt ekki eins og api né í rimlum. Hanga með sjálfri mér og klára myndina sem er komin á veg.

Best að fara að undirbúa hádegismatinn sem er snæddur upp úr 1400 að spænskum sið. Slatti af grænu og eitthvða kjötmeti ..... Best ég fari á wordpress og skrái niður átvenjurnar .............. Lísan er eins og rauðir hundar, dásamlega smitandi! :lol:

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.02.2006 21:44:36 / zyrniros

Einn dagur í einu .....

Ég horfi á manninn minn er situr afslappaður, mettur og sæll í rauðri peysu í rauða húsbóndastólnum sínum. Mustang srigaskór og Springfield bláar buxur. Þetta er ektamaðurinn sem nýtur góðs af fjölskyldu sinni.

Börnin eru ljúf, kanski lognið á undan storminum ..... systir kennir bróður að teikna kisu, kanínu og sofandi börn. "Á ég að teikna aðra kisu" segir sá stutti, .... "nei, gerðu hund eða hest" segir sú stóra.

Venjulegt líf á heimili út í heimi, eitt heimili sem er ekkert frábrugðið öðrum heimilum. Rólegheit og sjónvarpsgláp .... allir að gera það sem frelsið leifir.

"Ertu að skrifa ástarljóð til mín" segir bóndinn ..... Já kanski er ég það í huganum mínum, huganum sem fer sínar leiðir. Hugur sem er staðsettur þar sem hann vill þá og þegar.

Já, venjulegt líf á venjulegum stað í venjulegum heimi. Eða, óvenjulegum!

Og áfram heldur sagan ..........



» 5 hafa sagt sína skoðun

23.02.2006 18:42:08 / zyrniros

Innanpíkubleik eða ....

.... léttilega kóngablá (quess what king i´m talking about ...... thi hi hi) baðinnrétting.

Draumur um að búa eins og ljúfa lísa í undralandi og vera ligeglad með det samme! Einn sveppur hér og annar þar! Ætli ég velji nokkuð þessa kosti þar sem ég er ekki Palli sem var aleinn í heiminum og þarf að bera virðingu fyrir makanum! Gæti alltaf hótað honum upplausn fjölskyldunnar en nehhhhh. Fer ekki út í svolllll sálma enda mun ég eignast penthouse íbúð þar sem hvert herbergi verður tileinkað prinsessum og prinsum sögunnar!

Sagt er að kona lifi bara einu sinni og maðurinn með henni. Ég held að konur lifi mörgum sinnum í sama lífinu. Allavega þegar geðklofa einkenni sætir lagi. hi hi hi

Í dag 23.feb var Karneval í skólanum.....Dóttir mín var norn (lík mömmslunni sinni) og sonur minn Mörgæs ( líkur pabba sínum) Sumir voru apar og aðrir ljón enn aðrir lúbarðir og hinir maríuænumr (eins og sumar mömmur sem ég þekki) .....

Gleði einkenndi börnin í skólanum Colegio Gloria Fuertes frá San Miguel þar sem heljarinnar helgarfrí er framundan. Enginn skóli fram á næsta þriðjudag! Þeir sæta lagi sem fá frí en við hin vinnandi fólk þurfum að leggja krók á leið til starfa og aka 60km krók áður en dagur hefst. Fastur liður eins og venjulega í lok febrúar hvers árs sem er jafnan skemmtilegur fyrir börnin sem og foreldra þeirra.

Senn líður að fyrsta vordegi en hann er 21 mars og við þökkum fyrir veðursæld þrátt fyrir að veðrátta víðsvegar á Spáni sé ekki með besta móti.

En Eva valdi Paradís og unir sér sæl og glöð ..... góðar stundir kæru vinir!

» 3 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 21:43:10 / zyrniros

Pirr, pirr, pirr ........................ endalaust pirr,

kurr, kurr, kurr .............. endalaust kurr eins og dásamleg rjúpan nema hvað að mín er að springa.

En við vitum öll að það þýðir ekki mikið að kurrast né pirrast og hugljúfast að strjúka sálina með nokkrum strokum, pensilstrokum ..... ekki misskilja!

Skildi þetta vera breytingaraldurinn sem herjar á annars unga Frú, er hin sama búin að missa af barnalestinni, ekki fleiri börn eins og þau eru nú yndisleg.

Hummmmm........huxaði smokkur áðan er ég horfði á fimm og hálfsársgamlan son minn sem var að troðast, aha!  Hvernig er hægt að hugsa getnaðarvarnir þegar yndislega heilbrigð og falleg börn eru í nánd.  Hvernig er hægt að hugsa svona að það hefði nú komið sér vel að vera steingeldur ............. kurr, kurr, kurr = skýringin = pirr, pirr, pirr

Skelfilegt en fyndið að vera svo ógeðslega mannlegur og ófullkomin.  Á svona stundu þakka ég fyrir að eiga ólík móment í lífinu og vona að rjúpan í mér komi ekki á næstunni. 

Góðar stundir!


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.02.2006 22:57:29 / zyrniros

Fagur, fagur fiskur í sjó .....

.... með rauða kúlu á maganum .......

Það sem lítil stúlka hafði ekki gaman af þessu.  Hún hló og vildi að ég gerði þetta aftur og aftur.  Hún Bella litla Húnadóttir kom í afmæli Írisar Höddu og lék við Frúnna í ansi skemmtilegum leik.

Það voru margir skemmtilegir orðaleikir svo sem Frúin í Hamborg (Frúin á Spáni) Rómverskur Ribbaldi, og þessi sænski um sju sjukhussköteskur ...... og fleiri svipaðir.  Það að vera barn er sennilega merkilegasta tímabil lífs manns.  Tímabil sem við lærum hvað mest, stækkum hvað mest (ef á þverveginn er ekki talið með), erum fallegust og svo mætti lengi telja.

Svo, hugsa ég um ömmu og hugsa hvað hennar aldur var skemmtilegur alla ævina sem ég þekkti hana sem fær mig til að álykta að allur aldur sé skemmtilegur í augu þeirra sem sér og nemur. 

Börn eru yndisleg og í dag fékk fallegur lítill drengur nafnið Orri Thor sem segir allt um þessa litlu hetju er nýlega hóf lífið.  15 febrúar kom hann í heiminn og í dag á amma hans afmæli á skírnardegi hans.  Kraftaverkin eru yndisleg.  Til hamingju með nafnið þitt fallegi strákur!

Nú er ró í kofanum og hér sit ég og hugsa um allt og ekkert, um ömmu mína og fótanuddtækið hennar ...... keypti mér fótanuddtæki í dag í minningu hennar.  Mig langar að vera með jafn sætar fætur og hún ..... thi hi hi

Risastrigi var keyptur og ektamaðurinn fussaði bara yfir þessu.  Er ekki nóg komið ha.  Aldrei verið ákveðnari og mesta furða að ég hafi ekki bara keypt alla stigana í búðinni.  Gerði það ekki því þetta var dýr búð en samt engin dýr.

Eina dýrið var ég sem er rándýr og hamingjusöm.



» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 27